föstudagur, febrúar 06, 2009

Síðasti fæðingarorlofsdagurinn *sniff*

Í dag var síðasti dagurinn minn í fæðingarorlofi :( Janúar er búinn að vera svo afslappandi og yndislegur hjá okkur Kristjáni heima að ég er bara pínulítið leið yfir þessu. En um leið er ég svo sem alveg tilbúin að fara að vinna. Og Kristján verður nú í góðum höndum pappa síns næstu 3 mánuði.
Öfugt við fyrstu 7 mánuði orlofsins þegar ég var á þönum alla vikuna í leikfimi og ég veit bara ekki hvað, þá höfum við Kristján núna í janúar verið að leggja okkur saman nánast daglega, dunda við að gera herbergi Dísu að prinsessuherbergi (mála ofl) og hafa það gott. Er ánægð að hafa tekið smá rólegheit líka :)

Þórdís er byrjuð í World Class og fetar þar í spor foreldranna, en hún byrjar aðeins yngri. Er þar í dansi, ásamt Köru Sól og bestu vinkonunni úr leikskólanum. Hún er líka í dansi í leikskólanum.
Þórdís er orðin svo stór og dugleg. Hún var svolítið erfið á tímabili, gæti hafa tengst fæðingu Kristjáns, en er laus við það núna. Það er ekki til afbrýðisemi hjá henni og eru þau aðeins farin að leika saman .. þ.e. hún reynir að koma honum til að hlæja :)

Kristján borðar meira en seríós núna, eða heilu skálarnar af alls konar grautum, fisk með kartöflum, brauð og allt það. Hann verður fljótur að stækka. Hann er farinn að sofa alla nóttina (jessssss!!!) og kominn í sitt eigið herbergi. Hættur með pela, búinn að fara í fyrstu næturpössunina hjá tengdó þegar við Jói fórum á árshátíð. Skríður aðeins hermannaskrið og hossar sér á rassinum. Gerist hratt allt saman. Svo byrjar hann 4. maí á leikskólanum hennar Dísu.

Jói er kominn með veiði-fiðring .. enda kominn febrúar :) Búinn að kaupa allavega eitt veiðileyfi. Hann er mjög spenntur að komast í 3ja mánaða frí, gott að kúpla sig aðeins út úr þessari vinnu (þó það sé nú reyndar númer eitt að hafa vinnu!). Ég var heiðruð á árshátíðinni fyrir 10 ára starf .. en var reyndar kölluð úreldur starfsmaður af veislustjórunum (vonandi sagt í gríni :) Það voru nú 3 heiðraðir fyrir 20 ára starf!

Jói kominn heim .. var á einhverri veiði-kynningu. Sjáumst síðar ;)

föstudagur, desember 19, 2008

Stórfréttir

Kristján fékk hálft seríós í dag.
Já margt gerist á stóru heimili.

þriðjudagur, desember 09, 2008

Kristján hálfs árs í dag :)

Nýjar myndir komnar!

Þá er litli kúturinn bara orðinn hálfs árs! Og það á afmælisdegi Dags frænda :)
Það sem hann kann í dag er:
- að sitja, næstum óstuddur
- borða litla grautarskál
- baða út höndum og grípa í allt
- segja stundum ma eða mamm þegar hann er ósáttur
- og svo sagði hann babae í dag :)

Svona er lífið hjá 6 mánaða kríli. Hann babblar mikið og er ofsalega skemmtilegur. Er enn á næturbrölti en það er að skána.
Þórdís elskar litla bróður sinn voða mikið og eitt af morgunverkunum er að kíkja til brósa og heilsa uppá hann, klappa honum á kollinn og koma honum til að brosa. Eins þegar hún kemur af leikskólanum, og bara alltaf þegar hún hefur ekki séð hann svolitla stund. Þarf alltaf að knúsa hann aðeins :) Honum finnst hún líka hrikalega fyndin og þau eru greinilega farin að þekkja hvort annað svolítið.

Já það hefur nú alveg ýmislegt gerst síðan í ágúst þegar ég skrifaði síðast. Þórdís búin að vera í íþróttaskóla og útskrifaðist þaðan þarsíðustu helgi. Svo bara fullt af afmælum og hitt og þetta :)

Bless í bili.

mánudagur, september 08, 2008

Kristján heiti ég


og er Ammendrup Jóhannsson :)
Kristján litli var skírður 17. ágúst í Lágafellskirkju og fékk þetta líka fallega nafn, í höfuðið á föðurafa sínum. Ég var alltaf með þau háleitu markmið að setja inn ágústmyndir um leið og ég setti nafnið inn en það er greinilega ekki að gerast svo best að drífa amk nafnið inn og vonast svo til þess að fá tíma til að henda myndunum inn fljótlega :)
Skírnin tókst vel í alla staði og Kristján litli var algjör engill allan daginn. Hann var meira að segja svo sætur að brosa bara framan í Ragnheiði prest þegar hún var að setja vatn á hausinn á honum. Hann er líka brosmildur með eindæmum.
Annað sem hefur gerst frá því síðast er að Dagur skrapp til Japan hvorki meira né minna og var þar í um 2 vikur. Fengum myndashow í gær og ef þetta er ekki spennandi staður að heimsækja þá veit ég ekki hvað. Nú er Japan komið á stefnuskrána.
Svo fórum við að venju í maraþonið með Mæju vinkonu þar sem Kristján og Þórdís stóðu sig með prýði (hann í vagninum, Þórdís ofaná vagninum).


Nokkur afmæli hafa einnig átt sér stað enda er júlí og ágúst mikill fengitími vinkvenna minna.
Á morgun er 3ja mánaða skoðun og henni fylgir sprauta fyrir Kristján. Vonandi verður hann ekki veikur.

mánudagur, ágúst 04, 2008

8 vikna og 168 vikna og 4 daga

Komnar júlí-myndir og meira að segja nokkrar ágúst-myndir!
Vissuð þið að maður hefur minni tíma þegar börnin eru orðin tvö og þar af eitt sem vill lítið blunda á daginn ?
Alveg kominn tími á myndir enda margt búið að gera í sumar. Fyrir það fyrsta þá hætti Þórdís með duddu 12. júlí. Við fórum í Húsdýragarðinn og hún gaf lömbunum duddurnar. Þetta var svolítið erfitt í tvær nætur en svo hefur hún lítið minnst á duddurnar. Hún virtist líka nokkurn veginn tilbúin í þetta. Við fórum í 4 nætur í bústað í Úthlíð. Veiðiferð og svo fjallgöngu-grill í Hraunhóli. Afmæli, Dalakofaheimsóknir, matarboð o.fl. Sjá myndir :)
Sá litli dafnar mjög vel. Brosir og hjalar mikið og fór að velta sér í gær (af maga á bak). Þetta gerist svo hratt. Nú er búið að ákveða nafn og verður hann væntanlega skírður 17. ágúst.
Þórdís og Jói eiga núna eina viku eftir af fríinu. Best að hætta þessu "tölvi" eins og Þórdís segir og fara að gera eitthvað.